Hin fjölhæfa Sigrún Stella gaf út glænýtt lag þann 10. júní sem ber heitið „Circles.”
Sigrún sem er búsett í Toronto í Kanada átti ein vinsælasta lag landsins árið 2020 (Sideways) þar sem hún stimplaði sig rækilega inn í íslensku tónlistarsenuna með sinni hugljúfu söngrödd.

Hér gefur hún út rokk skotna ballöðu sem fjallar um hið eitraða ástarsamband sem er í stöðugri hringrás og nær jafnframt aldrei þessum ákveðnu endalokum. Hér er á ferðinni virkilega spennandi tónlistarkona sem vinnur nú að væntanlegri plötu.
Umræðan