Tónlistarmaðurinn Agnar Agnarsson, eða Agzilla ens og hann er kallaður, kom fyrir skömmu fram á skemmtistaðnum Bravo á sérstöku Hausar kvöldi, en Hausar er „drum n bass“ hópur sem sérhæfir sig í samnefndri tónlistarstefnu og heldur úti netútvarpsstöðinni Hausar Radio.
Agzilla þykir vera einn af fremri plötusnúðum landisins og er einmitt frum kvöðull þegar kemur að drum n bass tónlist. Á Bravo spilaði hann eingöngu tónlist frá árunum 1995 – 2005 og hægt er að hlusta á það hér að neðan. Þess má geta að kappinn sendi nýverið frá sér plötuna Cats Can Hear Ultrasound, en það er breska plötuútgáfan Melatheadz sem gefur plötuna út.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á plötuna Cats Can Hear Ultrasound sem Agzilla sendi frá sér fyrir skömmu:
Umræðan