Tónlistarmanninn Einar Vilberg ættu flestir að þekkja úr rokk hljómsveitinni Noise en Einar hefur verið starfandi tónlistarmaður frá 16 ára aldri.
Einar stofnaði hljómsveitina Noise árið 2001 með bróður sínum Stefáni Vilberg og hefur bandið gefið út fjórar breiðskífur og farið í fjölda tónleikaferða um heiminn. Einnig starfrækir Einar Vilberg eitt glæsilegasta stúdíó landsins, Hljóðverk þar sem hann hefur annast production, upptökur, mix og masteringu fjölda platna með mörgum af þekktustu hljómsveitum landsins.
Einar sendi nýlega frá sér tvær smáskífur af væntanlegri sóló plötu sinni. Lögin „So Long” og „Sleepless” gefa hlustendum ágætis forsmekk af því sem koma skal á plötunni sem er væntanleg í sumar. Einar Vilberg sá sjálfur um að pródúsera, taka upp, hljóðblanda og mastera plötuna, ásamt því að semja öll lög og texta.
https://www.youtube.com/watch?v=gLHmZxh-8UQ
Umræðan