DIMMA hefur nú sent frá sér eigin útsetningu af lagi Trausta Bjarnasonar Andvaka þar sem Guðrún Árný syngur og spilar á píanó ásamt DIMMU.
Þetta er eina tökulagið sem verður á nýrri 10 laga breiðskífu sveitarinnar sem ber heitið Þögn og kemur út í vor. Þögn mun vera sjötta hljóðversplata DIMMU en þeir hafa einnig sent frá sér nokkrar tónleikaplötur í gegnum tíðina.
Silli Geirdal, bassaleikari DIMMU, gerði textamyndband við Andvaka sem nú er komið á YouTube en lagið má einnig finna á Spotify.
Umræðan