Tónlistarhátíðin XJAZZ Reykjavík nálgast en hátíðin fer fram dagana 20. – 22. Mars næstkomandi.
Aðal númer hátíðarinnar í ár eru tónlistarmennirnir Hans Joachim Roedelius og Arnold Kasar en Roedelius er ein mesta goðsögn raftónlistarinnar og er oft kallaður Afi Raftónlistarinnar. Roedelius var í hljómsveitinni Cluster & Harmonia ásamt tónlistarmönnunum Moebius og Michael Rother úr sveitinni Neu!. Roedelius hefur einnig gefið plötur með ambient goðsögninni Brian Eno.
Xjazz Reykjavík á rætur sínar að rekja til Berlínar en vinaborgir hátíðarinnar eru Reykjavík, Istanbúl, Rússland og Ísrael. Eins og nafnið gefur til kynna er fókus hátíðarinnar settur á jazz tónlist en í nokkuð víðum skilningi. Framúrstefnuleg tónlist, elektróník og klassík er einnig á boðstólnum sem oft á tíðum blandast við jazzinn á skemmtilegan hátt.
Tónleikar Hans Joachim Roedelius og Arnold Kasar fara fram í Fríkirkjunni laugardaginn 21. Mars og er hægt að nálgast miða á Tix.is. Enginn raftónlistarunnandi ætti að láta þennan einstaka viðburð framhjá sér fara en lofað er miklum krafti og einstakri tónlist!
XJAZZ fer fram í Fríkirkjunni og í Mengi dagana 20. – 22. Mars næstkomnandi og er einnig hægt að nálgast miða á Tix.is.
XJAZZ Reykjavík á Facebook
Umræðan