Í dag, þriðjudaginn 22. mars 2022 fer miðasala í loftið fyrir tónleika Bríetar í Hörpu þann 21. maí 2022.
Það er svo eingöngu á morgun 22.3.2022 sem boðið verður upp á 23% afslátt í tilefni 23.ára afmæli Bríetar.
„Hæææ, Bríet hér. Vegna mikilla eftirspurnar ætla ég að halda aftur tónleika í Eldborg í Hörpu 21. maí næstkomandi. Ég ætla að endurtaka leikinn og búa til stórkostlega tónleika upplifun fyrir ykkur. Þeir sem misstu af útgáfutónleikunum mínum í október vilja ekki missa af þessu tækifæri.”
Miðasalan hefst á morgun, 22. mars kl.10.00 á tix.is og harpa.is
Umræðan