Tónlistarkonan Elín Halldórsdóttir tónlistarkona gaf út fyrir stuttu 5 laga rafræna skífu á 32 miðlum.
Það er SoundCloud í Kísildalnum sem dreifir skífunni enda fær tónlist hennar bæði mikla spilun austan og vestan hafs og hafa lögin DEAR MOON og FAKE FRIENDS fengið spilun upp á tæplega 17 þús streymi síðustu dagana á SoundCloud veitunni, en er nú í dag dreift á 32 helstu veitur að auki.
Það væri ekki úr vegi að kynna tonlistarkonuna betur fyrir íslenskum hlustendum, ekki síst þar sem hún er ein fárra íslenskra tónlistarmanna sem ritstjórar Spotify sjá ástæðu til að gera 3 klst Mix lista með.
Í dag er nýtt tungl í nauti og það er eitthvað dularfullt og mjög tungllægt við lagið DEAR MOON, en þessi misserin erum við einmitt að verða vitni að miklum breytingum í henni veröld vegna afstöðu Himintunglanna.
Umræðan