Hljómsveitin Bergmál gefur út smáskífuna “Dónajól”
Tónlistarkonurnar Selma Hafsteinsdóttir og Elísa Hildur Þórðardóttir sem skipa gleðisveitina Bergmál gáfu út smáskífuna Dónajól sem kom út á spotify og öllum helstu veitum.
Á henni er hægt að finna lögin: Uppstúfur, Ástarævintýri Grýlu og nýjasta lagið Heilög fæðing. Í byrjun desember mun síðan lagið um hann Askasleiki bætast við plötuna, en þær eru að leggja lokahönd á lagið.
Í laginu um Heilaga fæðingu er fjallað um á kómískan máta hvernig Jesús fæddist inn í þennan heim og af hverju við höldum jól. Okkur finnst mikilvægt að hægt sé að sjá fyndnar hliðar á öllu, jafnvel á svona rosalega heilögum hlut eins og fæðingu Jesús. Við vitnum í söguna sem við þekkjum flest öll, þ.e. að sonur Maríu eigi að vera eingetinn, en samkvæmt okkar útreikningum gengur það dæmi ekki upp. Stóra spurninginn hver er pabbinn og af hverju voru vitringarnir viðstaddir í þessari fæðingu? Þetta er sápuópera af bestu gerð að okkar mati!
Uppstúfur er seiðandi og tvíræður texti sem gerir það að verkum að þér finnst lagið annað hvort ótrúlega dónalegt eða bara mjög fallegt og skemmtilegt. En okkur þykir virkilega gaman að semja óvenjulega og skemmtilega texta sem kemur fólki til að hlæja.
Ástarævintýri Grýlu er jólasaga af bestu gerð um ástir og örlög Grýlu og laumusonar hennar. Hvað gerðist, af hverju hélt Grýla framhjá Leppalúða, hver er faðir 14 jólasveinsins og hvað heitir hann? Þið komist að því í þessu lagi.
Þið getið hlustað á þessa stórskemmtilegu Dónajólaplötu hér:
https://open.spotify.com/album/1URkjU9SsiEguVMTsXy05C?si=zPtFCkqlQcyhRTuIoskgJA
Ef þið viljið bóka Dónajól fyrir fjar-skemmtun eða live skemmtun þá getið þið haft samband við bergmál hér:
www.bergmal.band
Umræðan