Listahópurinn Dalalæða gaf út tónverkið Dysjar á vínylplötu 1. desember 2020. Þetta verk er frumburður Dalalæðu og einnig fyrsta plata nýstofnaðs útgáfufélags sem ber heitið VAX . Nú þegar er önnur útgáfa Vax í vínylpressun og mun koma út á fyrsta ársfjórðungi 2021; nokkrar fleiri plötur eru komnar langt í upptökuferli og undirbúningi og koma út á næstunni.
Þetta er frumsamið tónverk þar sem tvinnað er saman dómsdagsdjassi við aldagamla ljóða- og rímnahefð Íslendinga, þar sem notast er við töluð orð á íslensku í stað söngs. Viðfangsefnið í textagerðinni og innblástur tónlistarinnar sækja í íslenska samfélagssögu og þar sem legið var yfir heimildum úr rannsóknarverkefninu Dysjar hinna dæmdu, sem fjallar um aftökur á Íslandi frá sextándu öld fram á þá nítjándu; rannsóknarverkefnið er leitt af Steinunni Kristjánsdóttur, prófessor í fornleifafræði og hefur verið ráðgjafi í verkefninu Dysjar.
Meðlimir Dalalæðu eru: Hannes Helgason (píanó), Jóel Pálsson (bassaklarínett, kontrabassaklarínett, sópran saxafónn), Jóhannes Birgir Pálmason (ljóðagerð og ljóðalestur, hljóðsmölun), Magnús Trygvason Eliassen (trommur) og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson (kontrabassi).
Vefsíða verkefnisins Dysjar hinna dæmdu: dhd.hi.is
Dalalæða á Facebook
VAX á Facebook
Umræðan