Lagið Takk, af tilkomandi plötunni Ljósbrotin við Myrká eftir Hallgrím Oddsson er nú komið inn á Spotify. Þetta er fyrsti undanfari plötunnar sem fjallar eins og nafnið gefur til kynna um draugasöguna Djáknann á Myrká.
Djákninn upplifir sögunna sem hugdjarfa ástarsögu ungs manns sem lætur ekkert standa í vegi fyrir ástinni sem nær að sjálfsögðu langt út fyrir mörk grafar og dauða. Sagan er lesin svikalaust upp eins og hún var rituð en sjónarhorni djáknans er þá aðeins veitt rými er hann brestur í söng.
Ljósbrotin við Myrká er þriðja plata Hallgríms en hinar fyrri, Einfaldlega flókið (2012) og Aldrei það villtur að ég rati ekki í vandræði (2018), fengu lofsamlega dóma hjá gagnrýnendum á sínum tíma.
Takk er síðasta lag plötunar og er sagan þar yfirstaðin en gripið niður augnabliki áður en djákninn rennur saman við alsælu eilífðarinnar.
Umræðan