DIMMA mun ferðast um landið í sumar og koma við á fjölmörgum stöðum þar sem þeir verða bæði með kvöldtónleika sem og dagtónleika, svo aðdáendur á öllum aldri geta upplifað alvöru rokkkonsert.
DIMMU þarf vart að kynna enda ein vinsælasta rokksveit landsins og hafa þeir gefið út fimm breiðskífur, jafnmargar tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans. En um þessar mundir eru þeir að vinna að sinni sjöttu breiðskífu, sem áætlað er að komi út á árinu.
Á tónleikaferðinni í sumar munu vinsæl lög eins og „Almyrkvi“, „Þögn“ og „Bergmál“ fá að hljóma ásamt úrvali af eldri perlum sveitarinnar og því ætti enginn rokkunnandi að láta sig vanta á tónleika DIMMU. Eftirfarandi tónleikar eru komnir í sölu á Tix.is
2. Júlí – Höfn í Hornafirði – Hafið – kl. 16:00 & kl. 21.00
3. Júlí – Egilsstaðir – Valaskjálf – kl. 16:00 & kl. 21:00
4. Júlí – Reykjahlíð við Mývatn – Úlfaldi úr Mýflugu
10. Júlí – Siglufjörður – Kaffi Rauðka – kl. 16:00 & kl. 21:00
11. Júlí – Akureyri – Græni Hatturinn – kl. 16:00 & kl. 21:00
18. Júlí – Spot – Kópavogi – Eistnaflug kl. 19:00
23. júlí – Grindavík – Fish House – kl. 16:00 & kl. 21:00
24. Júlí – Hveragerði – Skyrgerðin – kl. 16:00 & kl. 21:00
25. Júlí – Flúðir – Félagsheimilinu – kl. 21:00
26. Júlí – Reykjavík – Dillon – kl. 21:00
Fleiri tónleikar með DIMMU í sumar verða svo tilkynntir fljótlega.
Umræðan