Rapparinn Daniil gaf nýverið út EP plötuna S4W. Platan er unnin með pródúserunum Izleifi, Tommy on the track, BNGRBOY og Ágústi Karel.
Daniil er 19 ára gamall en fyrsta platan hans, 300 sem kom út í október 2019 hefur notið mikilla vinsælda og var lengi á lista yfir mest streymdu plötur landsins. Daniil vinnur mikið með pródúsernum Tommy on the track en auk samstarfs hans við Tommy hefur hann unnið með rapparanum 24/7. Þá hefur Daniil einnig unnið með Birni, Joey Christ og Yung Nigo Drippin.
Umræðan