Reynsluboltarnir Daníel Ágúst, Bomarz og Doctor Victor kynna lagið „Dansarinn” í tilefni útgáfu glæpasögu Óskars Guðmundssonar. Glæpasagan Dansarinn eftir Óskar Guðmundsson er komin út sem hljóðbók, rafbók og innbundin bók.
Storytel fór á þá leið að semja titillag fyrir bókina í samstarfi við tónlistarmennina Daníel Ágúst, Bomarz og Doctor Victor. Lagið Dansarinn er nú einnig aðgengilegt á Spotify, Apple Music, Amazon Music, etc.
Einnig hefur verið framleitt tónlistarmyndband sem tengist bókinni beint en ekki er vitað til þess að þessi leið hafi verið farin áður, að gefa út lag samhliða útgáfu nýrrar skáldsögu. Myndbandið er virkilega glæsilrgt en það er framleiðslu fyrirtækið Thank You sem á heiðurinn af því.
Umræðan