Dagur íslenskrar tónlistar 2017 verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 7. desember. Við fögnum þessum sameiginlega fjársjóði okkar, tónlistinni, og eru útvarpsstöðvar hvattar til að leika einvörðungu íslenska tónlist þennan dag.
Klukkan 11 verður að venju útvarpað frá Hörpu þremur íslenskum lögum sem þjóðin syngur saman. Eru allir hvattir til að gera hlé á námi, vinnu eða annarri iðju og syngja með. Lögin sem þjóðin syngur í ár eru:
„Líttu sérhvert sólarlag:” (höf. Bragi Valdimar Skúlason)
„Ef engill ég væri með vængi:” (höf. lags Ellen Kristjánsdóttir, höf. texta Elín Eiríksdóttir)
„Gefðu allt sem þú átt:” (höf. lags Jón Jónsson, höf. texta Einar Lövdahl)
Það er magnaður sameiningarmáttur í því að syngja saman. Textar laganna í ár vekja okkur til umhugsunar, umvefja okkur og hvetja til dáða. Upplýsingar, myndbönd, texta, nótur og hljóma laganna sem sungin verða í ár, má finna á facebook síðu viðburðarins Dagur íslenskrar tónlistar.
Flytjendur laganna í útvarpsútsendingunni verða:
„Líttu sérhvert sólarlag:” Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson
„Ef engill ég væri með vængi:” Elín Eyþórsdóttir
„Gefðu allt sem þú átt:” Jón Jónsson
Efnt var til leiks á samfélagsmiðlum í fyrra #IcelandMusicDay og munum við leika þann leik einnig í ár. Leikurinn fer þannig fram að fólk velur uppáhalds íslensku lögin sín af tónlistarveitum eins og Spotify eða Youtube, deilir og merkir (taggar) 1-5 erlenda vini sína. Allir eru hvattir til að taka þátt og kynna íslenska tónlist fyrir erlendum vinum sínum í þessu samstillta átaki, sem er í fyrsta skipti svo vitað sé um að heil þjóð styðji svo þétt við bakið á sínu tónlistarfólki.
Máttur samfélagsmiðla er ótvíræður og eru því allir þátttakendur hvattir til að að virkja sem flesta, vini, vandamenn, fyrirtæki eða fjölskyldur, og bera þannig hróður íslenskrar tónlistar sem víðast á þessum merka degi. Allir samfélagsmiðlar eiga erindi í þessari herferð og því upplagt að deila tónlist á Facebook, Twitter, Instagram og Snapchat.
Eftirfarandi texta má nota þegar tónlistinni er deilt en þátttakendum er frjálst að nota sinn eigin og láta myllumerkið #IcelandMusicDay með: Listen to some of my favourite Icelandic songs and share your own! #IcelandMusicDay
Umræðan