Sumir kvíða kólnandi veðri og styttri dögum, en tónlistarunnendur fagna því að Iceland Airwaves færist nær og áður en þú veist af verður Reykjavík iðandi af lífi, tónlist, skemmtun og nýjum ævintýrum!
Í dag eru stór stund fyrir Iceland Airwaves 2019: Kjarnadagskrá hátíðarinnar í ár (aðaldagskráin, sú sem fer fram á “official” tónleikastöðum) er fullsköpuð og afhjúpuð í dag! Þetta þýðir að þessi eina í vinahópnum sem veit allt um tónlist og tekur Iceland Airwaves mjög alvarlega, getur loksins útbúið úthugsaða dagskrá fyrir sig og alla vini sína, sem reyndar vilja bara djamma.
Ef þið misstuð af því.. einhvern veginn.. þá er búið að tilkynna alla “official” tónleikastaðina í ár á heimasíðu Iceland Airwaves. Þar finnið þið myndir, hlekki, upplýsingar um aðgengi og margt annað nytsamlegt um hvern tónleikastað. Endilega kynnið ykkur málið, það eru nokkrir nýjir og spennandi staðir þarna inni ásamt gömlu góðu Airwaves stöðunum sem allir elska.
En þá eru tíðindi dagsins ekki upptalin en nú er einnig hægt að hala niður Iceland Airwaves appinu! Appið er einfalt og aðgengilegt þannig að það sé ótrúlega auðvelt fyrir þig að finna þær upplýsingar sem skipta máli og leika þér með þær; hvenær tónlistin er og hvar, hvar bjórinn er og hvar þú getur fengið afslátt af mat, drykk, verslun og þjónustu með fína Airwaves armbandinu þínu.
Aðal fítusarnir í appinu eru:
Dagskrá á “Offical” og “On” tónleikastöðum (official dagskráin er afhjúpuð í dag, önnurdagskrá verður kynnt innan skamms.)
“Off-Venue” dagskrá (kynnt síðar)
Búðu til þína eigin dagskrá og deildu henni með vinum
Sjáðu hvaða tónleikum aðrir eru spenntastir fyrir
Tilkynningar: Þegar hátíðin er farin af stað látum við vita ef raðir hafa myndast eða efákveðnir staðir eru fullir.
Listamannaprófílar
Kort sem hjálpar þér að komast á milli staða
Afslættir af mat & drykk
Afslættir af verslun & þjónustu
Allar helstu fréttir af Iceland Airwaves
Samfélagsmiðlar til að tengjast okkur og öðrum
Upplýsingar um styrktaraðila og samstarfsaðila, sem eru í því að gera vel við Airwaves gesti eins og þig.
Hægt er að sækja appið hér að neðan:
Hægt er að kaupa miða á hátíðina á Tix.is
Umræðan