Í dag sendi tónlistarmaðurinn Daði Freyr frá sér glænýtt lag og myndband sem heitir „Where We Wanna Be”
Daði hefur heldur betur verið á blússandi siglingu upp á síðkastið en Eurovision lagið hans „Think About Things” hefur farið sigurför um heiminn. Nýja lagið er alveg jafn hresst og skemmtilegt og er myndbandið mikil snilld en það er tekið upp heima hjá honum í Berlín. Það er klárt að hér er á ferðinni sumarhittarinn í ár og er ekkert annað í stöðunni en að skella á play og njóta.
Umræðan