Út er komin önnur hljómplata hljómsveitarinnar Coney Island Babies frá Neskaupstað. Hún ber heitið „CURBSTONE” og kemur út á vínyl auk þess sem hún verður fáanleg á helstu streymisveitum. Á plötunni er m.a. að finna lagið „SWIRL” sem fengið hefur talsverða útvarpsspilun.
Vinnsla við CURBSTONE hófst sl. haust en hún var tekin upp í Stúdíó Síló á Stöðvarfirði, Stúdíó Ris í Neskaupstað og Eyranu í Reykjavík frá október 2019 til febrúar 2020. Hún inniheldur átta lög sem samin voru í æfingarhúsnæði hljómsveitarinnar frá árunum 2005 til 2016. Upptökum á plötunni stjórnaði Jón Ólafsson, Albert Finnbogason hljóðblandaði og Jón Skuggi hljómjafnaði. Fyrsta smáskífan af plötunni kom út í maí og ber heitið SWIRL. Lagið hefur notið talsverðra vinsælda og rataði hæst í þriðja sæti vinsældarlista Rásar 2.
Hljómsveitin Coney Island Babies var stofnuð í Neskaupstað árið 2004. Hana skipa Geir Sigurpáll Hlöðversson, Guðmundur Höskuldsson, Hafsteinn Már Þórðarson og Jón Knútur Ásmundsson. Þeir voru einu mennirnir í bænum sem allir áttu snjáð eintak af Ocean Rain með Echo and the Bunnymen í plötuskápnum og því lá í hlutarins eðli að þeir stofnuðu hljómsveit. Undir þokumettuðum himni, í kjallara húss sem byggt var snemma á síðustu öld, hófu þeir æfingar og hafa ekki enn hætt.
Þeir gáfu út plötuna Morning to Kill árið 2012 og þá sinntu þeir líka undirleik fyrir Guðmund R., sveitunga sinn, á plötunni Þúsund ár sem kom út árið 2017. Þeir lýsa sjálfum sér sem „indí-bandi”, innblásnu af þungum og þéttum takti hinnar austfirsku öldu og nýbylgju- og indíböndum liðinna ára, eins og fyrrnefndum Bunnymen, R.E.M., Tindersticks, Nick Cave and the Bad Seeds, PJ Harvey og miklu fleiri.
CURBSTONE er fáanleg á vínyl og hana er hægt að kaupa beint frá býli í gegnum Facebook-síðu hljómsveitarinnar og í Lucky Records og 12 Tónum í Reykjavík.
Umræðan