Dúóið Hugrún Britta og Daniel Christensson stofnuðu hljómsveitina Communsit Sex haustið 2019 eftir að þau byrjuðu í sambandi en þau voru að senda frá sér plötuna „Lada Riva.”
Nafnið byrjaði sem brandari en Daniel hélt að Hugrún væri með kommúnista blæti í byrjun sambands þeirra. Communist Sex býr til „Indie rock” sem er samt sem áður blanda af mörgum öðrum stefnum. Hugrún fær innblástur frá japönsku 70’s poppi en Daniel fær meiri innblástur frá indie rokki. Daniel stefnir að því að byrja í tónlistarháskóla í Svíþjóð en Hugrún vinnur að nýrri popp plötu með tónlistarmanninum Erik Sjöstedt. Erik mixaði og hjálpaði þeim mikið með plötuna en án hans hefði platan ekki orðið að veruleika.
Mörg lög á plötunni fá innblástur frá Rússlandi á áttunda áratugnum. En bíllinnLada Riva kom út árið 1980. Á þeim tíma (og enn þann dag í dag) var mjög erfitt og hættulegt að vera samkynhneigður í Rússlandi og ennþá hættulegra að vera trans. Það sem Hugrúnu og Danielifinnst mikilvægt að fólk viti og læri um er hversu mikið hinsegin fólk þurfti og þarf enn þann dag í dag að berjast fyrir sínu lífi og sínum rétti í Rússlandi. Þrátt fyrir endalausa kúgun sem var sérstaklega slæm á áttunda áratugnum hefur hinsegin fólk í Rússlandi aldrei gefist upp.
Þessi kraftur og barátta gaf Hugrúnu mikinn innblástur og kom hún út sem gender fluid fyrir stuttu síðan.
Þessi plata hefur án efa gefið meðlimum Communist Sex mikla gleði, enda hefur mikil vinna verið lagð í plötuna.
Communist Sex á Facebook
Umræðan