Bubbi Morthens var að senda frá sér fyrsta lagið af væntanlegri plötu en lagið heitir „Sól Rís” og er komið út á öllum helstu streymisveitum.
Bubbi stefnir að útgáfu 11 laga plötu í mars á næsta ári en á plötunni eru sömu hljóðfæraleikarar og á síðustu plötu Bubba, Regnbogans stræti. Það voru þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari, Hjörtur Ingvi Jóhannsson hljómborðsleikari, Örn Eldjárn gítarleikari, Aron Steinn Ásbjarnarson saxófónleikari og Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommari.
Regnbogans stræti sem kom út í ágúst í fyrra hefur notið mikilla og hefur verið 57 vikur á topp 40 lista yfir mest seldu plötur landsins.
Umræðan