Síðastliðinn miðvikudag vann Bríet Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir tónlistarviðburð ársins í flokknum popp, rokk, rapp & hipp hopp og raftónlist fyrir útgáfutónleikana sína sem hún hélt í Eldborg 22. október síðastliðinn.
Sjaldan hefur sést eins stór og umfangsmikil tónleika-uppsetning í Eldborg áður hjá íslenskum tónlistarmanni en þess er vert að minnast að Bríet er fyrsti íslendingurinn til þess að halda sínu fyrstu útgáfutónleika (vegna útgáfu á fyrstu plötu) í Eldborg, Hörpu. Tónleikarnir frá 22. október verða einnig sýndir í Sjónvarpi Símans um páskana fyrir þá sem vilja njóta heima í stofu.
Bríet hefur ákveðið að endurtaka leikinn 21. maí næstkomandi fyrir þá sem misstu af þessari tónleikaupplifun í fyrra og einnig fyrir þá sem vilja koma aftur! Fyrstu tónleikarnir urður hér um bil uppseldir á 3 dögum. Miðasalan er hafin á tix.is en fyrstir koma, fyrstir fá!
Umræðan