Íslenski tónlistarmaðurinn, pródúserinn og upptökustjórinn BOMARZ var að senda frá sér enn einn hittarann sem heitir Mad for you.
Bomarz sem heitir réttu nafni Bjarki Ómarsson er ekki einn í laginu en bandaríska hljómsveitin Honestly leggur aginu krafta sína. Það eru þeir Eric Canto og Dalton Winters sem skipa dúóið Honestly en sveitin er á hraðri uppleið þessa dagana.
Bomarz þarf ekki að kynna fyrir þjóðinni en kappinn hefur unnið með flest öllum stórstjörnum landsin en einnig erlendu listafólki sem er að gera virkilega góða hluti. Hann er á blússandi siglingu um þessar mundir og stefnir kappinn á toppinn!
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið og mælir Albumm klárlega með að skella á play og hækka í botn.
Umræðan