Björk seldi upp á þrenna tónleika á nokkrum dögum og því er bætt við við aukatónleikum, sem fram fara laugardaginn 29. ágúst.
Á þessum tónleikum kemur Björk fram ásamt 15 manna strengjasveit frá Sinfóníuhljómsveit Íslands og flytja þau lög m.a. frá Homogenic og Vulnicura. Póstlistaforsala fer fram á fimmtudaginn kl. 12:00 og almenn sala hefst á föstudaginn kl. 12 á harpa.is/bjork.
Ef viðkomandi hefur þegar keypt miða á alla þrjá tónleikana á 10% afslætti fær viðkomandi sendan sérstakan hlekk kl. 10:00 á fimmtudagsmorgunn sem gerir þér kleift að kaupa miða á nýju tónleikana einnig á 10% afslætti. (Athugið að afslátturinn er bundinn nafninu sem viðkomandi gafst upp við kaup á hinum miðunum og er ekki framseljanlegur.)
Nánari upplýsingar hér.
Umræðan