Ari Árelíus bjó einn í kofa í Aalborg, norður danmörku og þegar covid skall á einangraðist hann með eldiviðs kamínunni, kartöflunum sem hann dömbsteraði og hljóðfærunum sínum. Hann samdi þetta lag þar í mótþróa við þetta hálf einmannalega líf.
Ari Árelíus er nafn tónlistarmannsins Ara Franks Ingusonar (skammstafað AFI). Hann gaf út EP plötuna Emperor Nothing árið 2018 og hefur sent frá sér nokkrar smáskífur síðan. Í laginu spila þeir Thomas Cortes á bassa, Hreiðar Már Árnason á trommur, Daníel Sigurðsson á trompet og
Magnús Jóhann Ragnarsson spilar á organ og hljóðgervla. Ari syngur, spilar á gítar, semur lag og texta og pródúserar. Lagið er masterað af Bassa Ólafssyni hjá Tónverk.
Ari Árelíus á Instagram
Umræðan