Big Thief þarf vart að kynna fyrir tónlistaráhugafólki á Íslandi en sveitin kemur fram í Hljómahöll þann 24. júní næstkomandi. Big Thief hefur notið vaxandi vinsælda frá því að fyrsta plata hennar Masterpiece leit dagsins ljós árið 2016.
Seinni plötur hennar hafa allar hlotið góðar viðtökur; gagnrýnendur héldu þannig varla vatni yfir Capacity, sem kom út árið 2017, og plöturnar U.F.O.F. og Two Hands, sem komu báðar út á síðasta ári, rötuðu á flesta árslista í Bandaríkjunum yfir plötur ársins. Sem dæmi var U.F.O.F. í þriðja sæti og Two Hands í þrettánda sæti yfir bestu plöturnar 2019 hjá bandaríska tónlistartímaritinu Pitchfork.
Platan U.F.O.F. var jafnframt tilnefnd til Grammy-verðlaunanna. Hljómsveitin þykir með betri tónleikasveitum í dag, ekki síst þegar nálægðin við áhorfendur er mikil og hljómburður er góður. Því er viðbúið að Hljómahöllin henti sveitinni vel.
Miðaverð er 6.900 kr. í stæði og 7.900 kr. í sæti á svölum. Miðasala er hafin á Tix.is
Umræðan