Árið 2011 fóru í loftið þættir sem tileinkaðir voru hjólabrettamenningunni á Íslandi. Ef þú hefur einhverntíman haft áhuga á hjólabrettum, þá ættiru að kannast við First Try Fail Mondays.
Í eitt og hálft ár eltist Addi Introbeats við flesta hjólabrettaiðkendur landsins og skoraði á þá að framkvæma hinar og þessar brellur, með mis góðum útkomum en þó alltaf á hressari nótunum. Þættirnir voru sýndir á hverjum mánudegi og sýndu fram á hversu skemmtileg og þétt brettasenan á landinu sé og áttu þættirnir mikin þátt í að vekja áhuga fólks og senunni hjá nýjum sem eldri iðkendum.
Addi valdi til 10 bestu þættina sem verða endursýndir á Albumm.is einu sinni í viku. Einnig verður sýnt efni af síðunni Ready To Pop sem Addi og Davíð Hólm höfðu umsjá yfir.
Umræðan