Hljómsveitin Sælir Bois var að senda frá sér sína fyrstu plötu sem ber heitið Sælir Bois Season.
Sveitin er skipuð þremur bestu vinum úr Hafnarfirði, tvíburunum Brynjari og Andra Jónassonum og Róbert Leó Sigurðarsyni. Reynir Haraldsson sér um allar útsetningar. „Við höfum alltaf verið miklir teknóhausar og vorum búnir að ræða að gera lög saman en við kynntumst í gegnum fótboltann sem við allir æfum. Þá var ekki aftur snúið. Platan inniheldur sjö lög, bara teknó, ekkert rugl.“
Sælir Bois á Instagram