Hljómsveitin Baggalútur sendir frá sér sérlegan hásumarsmell. Í tilefni af einmuna veðurblíðu og nýju innanlandsmeti í bongói.
Lagið kallast „Tíu dropar af sól”, en það mun vera akkúrat það magn af sólskini sem nægir einni manneskju til að halda sönsum á árinu 2020.
Flytjendur: Guðmundur Pálsson, söngur, Karl Sigurðsson, söngur, Bryndís Jakobsdóttir, söngur
Kristbjörn Helgason, söngur, Bragi Valdimar Skúlason, slagverk, gítar, hljómborð, Guðmundur Kristinn Jónsson, forritun, Helgi Svavar Helgason, trommur, slagverk, Eyþór Gunnarsson, hljómborð, slagverk, Sigurður Guðmundsson, bassi, raddir, píanó, gítar og Ásgeir Trausti Einarsson, gítar.
Lagið er hljóðritað í Hljóðrita í júlí 2020. Upptökur, Hljómblöndun og Tónjöfnun:
Guðmundur Kristinn Jónsson.
Umræðan