Í kvöld laugardaginn 29. júní mun Babies flokkurinn leggja sitt að mörkum í að svala dansþorsta landsmanna.
Sérlega mikið stuð er í vændum þar sem drengirnir fengu til liðs við sig engan annan en háttvirtan Herbert Guðmundsson, en hann hefur ekki komið fram með hljómsveit í háa herrans tíð. Flokkurinn mun leika undir í nokkrum af helstu smellum höfðingjans í bland við klassískar dansperlur og eigið efni.
Herlegheitin verða á Hard Rock og hefjast uppúr 22:00. Miðasala hér. og er miðaverð aðeins 2.000 í forsölu.
Umræðan