Axel O sem þekktastur er fyrir verk sín í sveitatónlist undanfarin ár var að gefa út ábreiðu af Eagles laginu Desperado.
Verkefnið byrjaði sem samstarfsverkefni Axels og Magnúsar Kjartanssonar, en þeir félagar hafa spilað þetta lag á tónleikum um árabil. Þá fengu þeir til liðs við sig Milo Deering is einn af þekktari hljóðfæraleikurum í country tónlistinni í Bandaríkjunum og hefur verið í tónleika sveitum Eagles og Don Henley um árabil. Milo leikur á Pedal Steel gítar og kassagítar, og á bassa er Jóhann Ásmundsson.
“Ég eignaðist fyrstu Eagles plötuna mína 14 ára gamall, „The Long Run” segir Axel “ég hef verið mikill Eagles aðdáandi alla tíð síðan og Desperado er eitt af mínum uppáhalds lögum.”
Umræðan