Tónlistarmaðurinn Ásgeir sendi í dag frá sér lagið, „Bernskan”, af væntanlegri plötu sem ber heitið „Sátt” og kemur út 7. febrúar 2020. Það er jafnframt fyrsta platan sem Ásgeir gefur út í samstarfi við íslenska útgáfufyrirtækið Record Records.
Ásamt því að gefa út nýtt lag tilkynnir Ásgeir tónleikaferð um Evrópu og Bandaríkin og stórtónleika í Háskólabíói sem verða haldnir laugardaginn 1. febrúar 2020. Miðasala á tónleikana í Háskólabíói hefst kl 10:00 föstudaginn 1. nóvember á Tix.is.
Tónleikarnir í Háskólabíói verða þeir fyrstu í tveggja mánaða tónleikaferð Ásgeirs um Evrópu og Norður-Ameríku. Allar upplýsingar um tónleikaferðina má nálgast heimasíðu Ásgeirs.
Á nýrri plötu snýr Ásgeir aftur með íslenskt efni en öll platan verður fáanleg bæði á íslensku og ensku. Á Íslandi kemur platan út undir nafninu „Sátt” en enska útgáfa plötunnar ber titilinn „Bury The Moon” og er það útgáfufyrirtækið One Little Indian sem líkt og áður gefur út tónlist Ásgeirs utan Íslands.
Lagið „Bernskan” var samið fyrst án texta, en Ásgeir settist svo niður ásamt föður sínum, Einari Georg Einarssyni til að ákveða innihald textans sem fjallar um það tímabil í æsku Ásgeirs er hann bjó í Garðinum ásamt fjölskyldu sinni, fullur af gleði og víðsfjarri öllum áhyggjum. Þetta undurfagra nostalgíska lag einkennist af einstaklega flottu gítarspili Ásgeirs, dansandi trommuleik, kröftugum lúðrum og síðast en ekki síst sterkri rödd Ásgeirs sem er engri lík.
Platan „Sátt” er uppgjör Ásgeirs við langtímasamband sem leið undir lok, en í kjölfarið ákvað Ásgeir að fara út á land þar sem hann eyddi nokkrum vikum aleinn við að semja nýtt efni. „Ég tók með mér gítar, hljómborð og lítið upptökutæki, það var allt of sumt” rifjar Ásgeir upp.
Ásgeir fékk senda matarpakka frá vinum og vandamönnum og sagði Ásgeir enn fremur: „Mig hefur alltaf langað til að gera þetta. Fara í burtu á eigin vegum að semja tónlist. Ég held að það hafi verið mjög hollt fyrir mig að hafa ekkert fyrir stafni annað en tónlist, enga truflun. Ég fór út að hlaupa á morgnana og eyddi síðan því sem eftir lifði dags við að semja lög.”
Umræðan