Anna Bergljót er tónlistarkona frá Laugarvatni og Mosfellsbæ sem var að gefa út sitt fyrsta lag og myndband. Lagið heitir „Addiction” og fjallar um óhóflega kaffidrykkju og sögu Önnu um kaffi, sem er stór og mikil, enda marg verðlaunuð fyrir kaffisgerð og hefur unnið í þeim bransa stóran hluta lífs síns.
Lagið kom út 20. ágúst og er fáanlegt á Spotify, ásamt tónlistarmyndbandi á Youtube sem var framleitt af Eiríki Inga Böðvarssyni (framleiðandi hjá RÚV). Lagið flokkast undir einhverskonar blöndu af nútíma popptónlist og 80’s fönk tónlist með áhrifum frá Stevie Wonder, Vulfpeck, Earth, Wind and Fire, Chaka Khan, Emiliana Torrini, Coldplay og Alicia Keys. Lagið er einstaklega grípandi og fær mann strax til þess að dansa.
Anna Bergljót er lærð jazzsöngkona í FÍH og hefur verið þar í þónokkur ár og hefur mikla reynslu á að syngja jazz- og popptónlist og kynnist hún hljómsveitinni sinni þar. Anna hefur sungið frá ungaaldri og hefur sungið með fullt af fólki og hljómsveitum, meðal annars hljómsveitinni Tilviljun?, þeirri Ingunni Huld og Hildi tónlistarkonum, kór Lindakirkju og ótal fleiri.
Umræðan