Meðlimir Amor komu fyrst saman haustið 2017 og hefur mikil þróun átt sér stað síðan þá. Úr því að vera svokallað coverband sem gerir ábreiður af alkunnum lögum yfir í að semja sína eigin tónlist.
Sveitin reikaði á milli ýmissa tónlistarstefna, þeirra á meðal popp, djass, rokk, fönk o.fl., áður en hún fann sinn rétta hljóm. Afraksturinn er nýútkomin plata þeirra, „Forever Was” sem varð aðgengileg á Spotify föstudaginn 10. júlí. Hljómsveitin samanstendur af fimm meðlimum á aldrinum 16-18 ára sem unnu náið með pródúsernum Hrannari Inga Benediktssyni (HONËST) að gerð plötunnar.
Amor á Instagram
Umræðan