Magnús Gunnarsson einnig þekktur sem Amoji var að senda frá sér ábreiðu af laginu Don’t You Worry Child með Swedish House Mafia.
Magnús vann lagið með sönkonunni Varsha Vinn en hún syngur lagið og er með plötusamning við útgáfurisann Sony Music. Magnús býr í Los Angeles þar sem hann semur tónlist og nýtur lífsins. Lagið var gefið út föstudaginn 15. Janúar og hefur fengið góðar viðtökur og hefur fengið talsverða spilun síðan.
Upprunalega lagið með Swedish House Mafia var mjög vinsælt en það kom út árið 2012. Magnús og Varsha ákváðu að setja lagið í aðeins öðruvísi búning en lagið er aðeins rólegra en upprunalega útgáfan.