ALBUMM
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Heim Music

Alvöru RAVE fyrir fullorðna – „Við bjuggum til þessa senu”

Ritstjórn Albumm.is Eftir Ritstjórn Albumm.is
26. May, 2022
í Music
0 0
0
Alvöru RAVE fyrir fullorðna – „Við bjuggum til þessa senu”
Deila á FacebookDeila á Twitter

Snemma á tíunda áratugnum var RAVE menningin að hasla sér völl í “öndergrándinu” hér á landi. Agnar Agnarsson eða Agzilla eins og hann er oft kallaður opnaði streetwear og plötubúðina Undirgöngin sem var einskonar miðpunktur senunnar á þessum tíma. 

Fatamerki eins og Stussy, Fresh Jive, Dosse Posse og fleiri merki voru allsráðandi á þessum tíma en einnig fór ansi mikið fyrir plötu sölunni! Þegar sendingar bárust til landsins með heitustu tónlistinni og fylltist verslunin af danstónlistar þyrstum plötusnúðum og hlustendum. Á þessum tíma var Íslenska hljómsveitin Ajax afar heit en senan átti fleiri bönd eins og t.d. Didi Seven, Mind in motion, Plan B og auðvitað hina margrómuðu T-World svo sumt sé nefnt. 

Klúbburinn Rosenberg var aðal pleisið en hann var staðsettur í kjallaranum á skemmtistaðnum Tunglinu, þó ekki sami inngangur. Rosenberg var mekka dans tónlistarinnar á Íslandi en plötusnúðar eins og Agzilla, Maggi Lego, Dj Grétar, Dj Frímann og margir fleiri sáu um tónlistina og má svo með sanni segja að svitinn hafi dropað úr loftunum!

Ég (Steinar Fjeldsted) var að verða 16 ára þegar Rosenberg kjallarinn var allsráðandi en ég var svo heppinn að Agzilla og krú tók mig undir sinn verndarvæng og opnuðu alltaf fyrir mér bakdyra meginn svo að ég kæmist inn! Talsvert var um ólögleg RAVE í vöruskemmum víðsvegar um borgina en þar var hent upp hljóðkerfi, Technis SL 1200 komið fyrir og einu strópi hent í gang! Yndislegt í alla staði. Þessi tími var “magical” alveg eins og t.d. Hippatímabilið. Þetta var eitthvað nýtt, eitthvað spennandi og það var allt að gerast! 

Nú getum við glaðst að nýju því loksins er komið að RAVE-I  fyrir fullorðna, RAVE fyrir fólkið sem fann upp reifið, fólkið sem reif allt í gang.  Maggi Lego og Agzilla eru klárir með sturlað „old school“ sett og verður mikið lagt upp úr geðveiku sándi og góðu ljósa-sjóvi, Þetta er fullorðins. Tilefnið er mjög einfalt, það er einfaldlega kominn tími á þetta og fólkið sem skapaði þessa senu langar til að dansa við geggjaða tóna! „Við bjuggum til þessa senu og ég lofa rífandi sturlun og geggjuðum tónum” segir Agzilla að lokum.  

ATH 30 ára aldurstakmark og takmarkaður miðafjöldi … Framandi kokteill innifalinn í miðaverði (með eða án áfengis). Reifið fer fram 28. maí næstkomandi í Ægisgarði, Ægir Brugghús úti á Granda í Reykjavík. Hægt er að nálgast miða á TIX.IS og er miðaverð 5.900 kr. 

Hér fyrir neðan má sjá heimildarmyndina Rafmögnuð Reykjavík sem fangar senuna á þessum tíma ansi vel. Myndin er eftir Arnar Jónasson:

Skrollaðu niður krakki!

https://vimeo.com/19846774?embedded=true&source=vimeo_logo&owner=3187022

Tengdar Greinar

newest sounds, hottest acts and a vibrant party
Music

newest sounds, hottest acts and a vibrant party

Skrapt Festival is the latest addition to the Faroese cultural scene. Bringing together the newest sounds, the hottest acts...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
2. June, 2023
lokar 20 ára stórafmæli með bullandi banger
Music

lokar 20 ára stórafmæli með bullandi banger

Love Guru lokar 20 ára Stórafmælisútgáfuseríu sinni með bullandi Banger, Energia. Guruinn hefur haldið sína afmælisveislu að mestu leyti...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
2. June, 2023
4 EP, 4 Tónlistarstefnur og 4 Landvættir
Music

4 EP, 4 Tónlistarstefnur og 4 Landvættir

Samosa er nýtt DIY-tónlistarverkefni leitt af Samúel Reynissyni en fyrsta smáskífan "Dragons At Home" kom út 14. febrúar á...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
30. May, 2023
„Ég held að allir foreldrar geti tengt við þennan texta”
Music

„Ég held að allir foreldrar geti tengt við þennan texta”

Fyrir stuttu gaf Jóhanna Guðrún út nýtt lag sem heitir Best í heimi og syngur dóttir Jóhönnu með henni...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
29. May, 2023
Næsta frétt
„Áður en við vissum af vorum við farnir að semja og pródúsa saman“

„Áður en við vissum af vorum við farnir að semja og pródúsa saman“

Umræðan

albumm@albumm.is
steini@albumm.is
Sími: 768-8606
Faxafen 10, 108 Reykjavík

VALMYND

  • TÓNLIST
  • MENNING
  • ALBUMM TV
  • INNLIT
Albumm.is © 2021 Allur réttur áskilinn | Íslandsvefir hönnuðu og hýsa þennan vef.
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV

© 2021 Albumm.is - Allur réttur áskilinn

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In

Add New Playlist