Fyrir skömmu sendi tónlistarkonan Brynja frá sér glænýtt lag og myndband sem ber heitið Fight. Helstu verkenfi Brynju á árinu sem er að líða var að klára nám sitt við SAE (School of audio engineering) í Amsterdam þar sem hún lærði hljóðtækni.
„Mér fannst það mikilvægt fyrir feril minn að læra hljóðtækni til þess að ég gæti tekið meira upp sjálf, svo ég væri ekki upp á aðra komin með tónlistina mína og til þess að ég gæti þróað minn eigin stíl.”
Þegar Brynja var ung lærði hún á fiðlu, klarinett og píanó. Það varð þó ekki til þess að kveikja áhuga hennar á tónlist, það var ekki fyrr en eftir mánaðardvöl með götuelikhúsi í Noregi sem hún uppgötvaði áhuga sinn á því að skapa sína eigin tónlist. Á einni svipan byrjaði hún að spila á gítar, syngja og semja lög. Síðan þá hefur hún ferðast um heiminn með tónlist sína, gefið út nokkra singla og tónlistar vídeí ásamt því að næla sér gráðu í samtíma dansi frá Listaháskóla Íslands og diplóma gráðu í hljóðtækni frá skólanum SAE. Eins og er býr Brynja í Hollandi þar sem hún vinnur að nýrri tónlist.
Lagið fjallar um ferðalag hennar inn í heim hljóðupptökulistarinnar. Fyrir henni var sá heimur mjög karllægur og hún var smeyk við að stíga fæti þar inn. Lagið fjallar um stuðning fjölskyldu hennar, þá sérstaklega föður hennar sem hvatti hana til þess að sækja um námið í SAE. Það fjallar um mömmu hennar og aðrar sterkar kvenfyrirmyndir sem hún hefur haft í lífi sínu.
Lagið fjallar einnig um að vera ákveðinn í að halda í sitt sound og treysta sinni eigin sannfæringu. Það fjallar um að berjast friðsamlega og muna að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Það fjallar um það að verða sjálfstæðari í eigin tónlistarsköpun og þurfa ekki að reyða sig á aðra til að koma hlutunum í verk. Það fjallar um að segja skilið við neikvæðni og umkringja sig fólki sem dregur fram það besta í manni.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Fight:
Umræðan