Lagið „Draumaland” er þriðja smáskífan af væntanlegri fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar Tendru sem kemur út 6.nóvember 2020 hjá Smekkleysu. Tónlist Tendru dansar á línu akústískrar raftónlistar og popplegrar þjóðlagatónlistar, en tónlistin byggir mikið á rafgítar og söng.
Lagið er samið og pródúserað af Mikael Mána Ásmundssyni, gítarleikara sveitarinnar og textann samdi hinn helmingur bandsins, söngkonan Marína Ósk. Draumaland er draumkennt popplag sem býður upp á áhugaverðan hljóðheim. Mikael Máni sá um að hanna þann heim og í laginu má heyra hann leika á rafgítar, rafbassa, víbrafón og slagverk auk hryngjamms. Lagið hefst á töfrandi intrói sem inniheldur raf-sömpl og orðin “Dúnalogn, skartar ljósaögn og þögn í stíl” en lagið er afar myndrænt og ber með sér jarðtengdan kraft. Textinn fjallar um það þegar nóttin mætir til landsins og þjóðin gengur til náða, nánast samtímis. Landið leggst í dvala.
„Í hjarta textans má finna vísun í einkennandi samstöðu íslensku þjóðarinnar, þ.e. hvernig við í eðli okkar erum öll tengd og höldum með hvoru öðru. Meira að segja brottfluttnir íslendingar erlendis finna hvorn annan og hópa sig saman.” segir Marína Ósk söngkona Tendru, en báðir meðlimir bandsins hafa búið erlendis síðustu ár. “Draumaland var líka fyrsta lagið sem við unnum í sameiningu þar sem við opnuðum á að hljóðfæraskipan væri ekki einungis bundin við rödd og gítar. Þá var eins og allar flóðgáttir opnuðust og áður en við vissum af vorum við komin með efni í heila plötu.” bætir Mikael Máni við.
Lagið var tekið upp í Sundlauginni í maí og júní 2020 og sá Birgir Jón Birgisson um upptökur, mix og masteringu. Lagið er að finna á öllum helstu streymisveitum. Líkt og áður sagði þá er fyrsta plata Tendru væntanleg eftir nokkrar vikur. Platan, sem heitir einfaldlega Tendra mun koma út í takmörkuðu upplagi á CD og vínyl og hefst forsalan á næstu dögum.
Umræðan