ALBUMM
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Heim Tónlist

Albumm frumsýning – Manic State með glænýtt lag og myndband!

Ritstjórn Albumm.is Eftir Ritstjórn Albumm.is
27. apríl, 2022
í Tónlist, Uncategorized
0 0
0
Albumm frumsýning – Manic State með glænýtt lag og myndband!
Deila á FacebookDeila á Twitter

Haraldur Már og Friðrik Thorlacius skipa dúóið Manic State og eru þeir heldur betur að þruma sér inn í sviðsljósið en í dag gefa drengirnir út nýtt lag og myndband. Lagið ber heitið Heltekinn og er það Æsir sem ljáir laginu rödd sína. Myndbandið er einkar glæsilegt en það er að sjálfsögðufrumsýnt hér á Albumm.is og á Vísir.is. 

Lagið er upprunalega samið sem dans slagari án söngs en síðar var saminn texti á ensku og varð lagið að nýju verkefni í smá tíma sem var kallað Shade eða skuggi og er samið á erfiðum tíma í lífi þeirra Manic State drengja. „Textinn fjallar um skuggahlið lífsins sem flestir upplifa á sinni lífsleið en nær samt að koma sér upp úr því á endanum” – segir Friðrik Thorlacius.

Fyrir áramót var auglýst eftir lögum í undankeppni Eurovision settu þeir meira Fútt í lagið og var textanum snarað yfir á íslensku og voru allir sammála um að útkoman væri alveg geggjuð. Eins og áður hefur komið fram er myndbandið einkar glæsilegt en Það var ákveðið að gera þetta eins einfalt og hægt væri. 

„Við skelltum bara upp svörtu efni sem við strekktum á vegginn í stofunni heima. Vorum með gamla Canon cameru sem við skelltum ofan á eldhússtól og ofan á skrifborð því að við áttum ekki þrífót, þannig að við bara redduðum okkur! Keyptum led ljós og spennir í IKEA sem að við settum síðan bleika litafilmu í og límdum hana á lampa til að fá skugga lýsinguna flottu og toppuðum þetta með gömlu stróp blikkljós sem að við létum blikka á skuggann sem að lét ramman flökta skemmtilega. Þannig að í raun varð útkoman betri en hugmyndin” – Friðrik Thorlacius. 

Fylgstu með Manic State á: Facebook / Instagram

Tengdar Greinar

Fullkomlega ókunnug fyrir sjálfri sér
Tónlist

Fullkomlega ókunnug fyrir sjálfri sér

Þríeykið Vök var að gefa út nýtt lag sem ber nafnið Miss Confidence og fylgir í kjölfar Lose Control...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
26. apríl, 2022
Leyfir sér að vera klisjulegur, cheesy eða whatever 
Tónlist

Leyfir sér að vera klisjulegur, cheesy eða whatever 

Kvikna er annar singullinn af væntanlegri plötu tónskáldsins Sævars Jóhannssonar, Whenever You're Ready sem kemur út 6. Maí.  Platan...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
25. apríl, 2022
Mánudagsplaylisti Ísaks Morris
Tónlist

Mánudagsplaylisti Ísaks Morris

Tónlistarmaðurinn  Ísak Morris hefur komið víða við og er á blússandi siglingu um þessar mundir. Fyrir skömmu sendi hann frá...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
25. apríl, 2022
Þolendur ofbeldis þurfa að þroskast hratt
Tónlist

Þolendur ofbeldis þurfa að þroskast hratt

Nýja, Íslenska rokkhljómsveitin Tragically Unknown hefur gefið út sitt fyrsta lag, Villain Origin Story. Lagið er fyrsta smáskífa hljómsveitarinnar...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
24. apríl, 2022

Umræðan

albumm@albumm.is
steini@albumm.is
Sími: 768-8606
Faxafen 10, 108 Reykjavík

VALMYND

  • TÓNLIST
  • MENNING
  • ALBUMM TV
  • INNLIT
Albumm.is © 2021 Allur réttur áskilinn | Íslandsvefir hönnuðu og hýsa þennan vef.
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV

© 2021 Albumm.is - Allur réttur áskilinn

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In

Add New Playlist