Hljómsveitin Vök sendir frá sér nýtt myndband í dag við lagið, Running Wild sem kom út á EP plötunni Feeding on a Tragedy fyrr í vikunni.
Í myndbandinu sjáum við Margréti Rán söngkonu og lagahöfund Vakar ferðast um á Vespu um götur Akranesbæjar líkt og hún gerði á unglingsárunum.
„Á uppvaxtarárunum mínum á Skaganum fannst mér ég aldrei passa inn. Ég þjáðist af innilokunarkennd og þráði að komast í burtu. Á endanum ákvað ég að elta draumana mína og fór.”
Margrét Rán.
Þessi flótta tilfinning kraumar undir í textanum og er um leið hvatning til allra um að láta drauma sína rætast. Hamingjan er þess virði að hlaupa á eftir henni.” Hilmir Berg Ragnarsson er leikstjóri myndbandsins sem framleitt er af Tjarnargötunni.
Útgáfutónleikar á Húrra á laugardaginn Vök fagnar þessum tímamótum með útgáfutónleikum á Húrra, laugardaginn 16.10.Kaktus mun sjá um upphitun og húsið opnar kl. 19:00.
Umræðan