ALBUMM
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Heim Music

„Áður en við vissum af vorum við farnir að semja og pródúsa saman“

Ritstjórn Albumm.is Eftir Ritstjórn Albumm.is
26. May, 2022
í Music
0 0
0
„Áður en við vissum af vorum við farnir að semja og pródúsa saman“
Deila á FacebookDeila á Twitter

Bear The Ant er nýtt band sem var stofnað í miðju covid 2021. Meðlimir bandsins eru þeir Björn Óli Harðarson (söngur) og Davíð Antonsson (trommur) sem margir þekkja úr hljómsveitinni Kaleo. Félagarnir voru að senda frá sér sína fyrstu fjögurra laga EP plötu, Unconscious ásamt tónlistarmyndbandi. Albumm hitti á kappana á sólríkum degi í miðbænum og fékk meðal annars að spyrja þá út í plötuna, samstarfið og hvort það sé ekki erfitt að finna tíma sem trommari í nýju bandi ásamt því að vera trommari á sama tíma í heimsfrægri hljómsveit.  

„Jú það getur verið það, sérstaklega þar sem Kaleo eru byrjaðir að túra um heiminn aftur. En sem betur fer er hægt að gera ýmislegt í gegnum netið,“ segir Davíð, bjartsýnn á þetta allt saman. „Það er alltaf hægt að finna tíma hér og þar ef viljinn er nægur og sterkur.“

Það fer ekki á milli mála að þeir félagar eru bjartsýnir á þetta nýja verkefni enda óhætt að segja að miklir listamenn eru hér á ferð með virkilega flott efni í höndunum. Unconscious er tekin upp og pródúseruð af þeim sjálfum en þeir fengu einnig aðstoð frá frábæru fólki og má þar nefna: Rubin Pollock, Daníel Ægir Kristjansson, Tómas Jónsson, Fanney Ósk Þórisdóttir, Karítas Óðinsdóttir, Stefanía Svavarsdóttir, Elísabet Sesselja Harðardóttir, Karl James Pestka, Unnur Jónsdóttir, Róbert Arason, Hannes Arason og Hafsteinn (Ceastone) Þráinsson.

„Tónlistin teygir sig í margar áttir, en rauði þráðurinn er kannski svolítið litaður af psychedelíu,“ útskýrir Davíð þegar spurður er um tónlistina á plötunni og bætir við að lögin fjögur eru mjög mismunandi og ætti að taka hlustendann í skemmtilegt ferðalag.

„Ekki beint tónlistarlega, nema þau áhrif sem Davíð hefur á bæði böndin,“ segir Björn þegar þeir félagar eru spurðir hvort bandið er undir einhverjum Kaleo áhrifum. „Annars erum við fyrir áhrifum úr öllum áttum; soul, rokk og psychedelísk tónlist kemur upp í hugann en allt getur svo sem haft áhrif, upplifanir, skap eða það sem maður er að hlusta á þá vikuna.“

Eftir að hafa fengið að hlusta á lögin beinist forvitnin að Birni og hans tónlistarbakrunni því hér er klárlega mikið hæfileikabúnt á ferð.

„Ég hef verið að syngja síðan ég man eftir mér, en fékk fljótt áhuga á gítar á unglingsárunum og stofnaði fjölda bílskúrsbanda sem voru misgóð,“ segir hann og brosir. „Seinna meir fór ég að læra í tónlistarskóla FÍH en er að útskrifast af rythmískri braut núna í vor.“

„Ég var búinn að vera að semja lög alveg frá því ég var unglingur en hafði ekkert gert almennilega við þau,“ segir Björn þegar spurður hvort hann hafi verið að semja eitthvað áður. „Ég hætti í löngu sambandi 2020, en sambandsslitin höfðu mikil áhrif á mig og urðu til ákveðin tímamót þar sem drifkraftur til að gera eitthvað við músíkina varð sterkur. Ég byrjaði þá að taka upp nokkur demó heima.“    

Hvernig þekkist þið og hvernig byrjaði þetta frábæra samstarf ykkar? „Við höfum þekkst í þó nokkur ár, en Björn Óli er frændi Rubins gítarleikara Kaleo og kynnumst við í gegnum hann. Hann sýndi mér demo af Higher Times í partýi bara svona upp á gamanið og við ákváðum að ég myndi tromma inn á lagið. Svo vatt það upp á sig og áður en við vissum af vorum við farnir að semja og prodúsera þetta verkefni saman. Við byrjuðum svo að leigja stúdíórými í byrjun 2021 og úr varð BEAR THE ANT.“

Myndbandið var tekið upp í Kaupmannahöfn síðasta haust af Herði Frey Brynjarssyni og unnið af honum Gabríel Bachman. 

„Myndbandið er smá trippy og dark, sem myndar skemmtilega melancholíu því lagið er bjart og nice,“ útskýrir Björn. „Það var tekið upp smá “gorilla style” og hélt áfram að þróast í gegnum allt ferlið.“

Hvað er svo framundan hjá Bear The Ant? „Við erum spenntir fyrir framtíðinni. Við förum beint í að vinna að breiðskífu og lifandi flutningi, en stefnan er að halda flotta debut tónleika þegar líða fer á haustið. Þetta er bara rétt að byrja hjá okkur.„

Tengdar Greinar

You might call this pure formalism
Music

You might call this pure formalism

How often have you wondered what it would sound like to compositionally mashup James Hetfield-type metal guitar and Clara...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
31. August, 2023
This song deals with the nation’s persistent inflation issue
Music

This song deals with the nation’s persistent inflation issue

Guðlaugur Hjaltason, who performs under the name "Lýðskrum", has released the song "Verðbólguvandinn", the song was written by the...

Eftir Álfrún Kolbrúnardóttir
18. August, 2023
Svavar explores New Horizons with “Sunrise”
Music

Svavar explores New Horizons with “Sunrise”

Hailing from the beautiful country of Iceland, Svavar is a talented musician who has been making waves in the...

Eftir Álfrún Kolbrúnardóttir
8. July, 2023
An African musician moved to Iceland for love.
Music

An African musician moved to Iceland for love.

Emmanuel is a Nigerian singer with Icelandic citizenship and is a songwriter under the stage name NonyKingz. Emmanuel has...

Eftir Álfrún Kolbrúnardóttir
3. July, 2023
Næsta frétt
Krummi tjaldar öllu til á SIRKUS

Krummi tjaldar öllu til á SIRKUS

Umræðan

albumm@albumm.is
steini@albumm.is
Sími: 768-8606
Faxafen 10, 108 Reykjavík

VALMYND

  • TÓNLIST
  • MENNING
  • ALBUMM TV
  • INNLIT
Albumm.is © 2021 Allur réttur áskilinn | Íslandsvefir hönnuðu og hýsa þennan vef.
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV

© 2021 Albumm.is - Allur réttur áskilinn

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In

Add New Playlist