Söngkonan, laga-og textahöfundurinn Marína Ósk var að senda frá sér nýtt lag, sem er jafnframt hennar fyrsta. Lagið, sem ber nafnið Meðan höndin mín í hendi þinni hvílir, skartar þó nýjum blæ og er poppskotið í söngvaskáldastíl.
„Lagið varð til fyrir nokkrum árum og er afskaplega rómantískt. Ég var að leika mér með „open tuning“ á gítarnum þegar upphafslína lagsins varð til,“ segir hún. Ég sat sem fastast og þremur tímum seinna var lagið klárt og ég búin að taka upp demó af því með röddum og öllu saman.“ Á þessum tíma var Marína í jazznámi í Amsterdam og vissi ekkert hvaðan þetta poppaða lag kom. „Ég ákvað þó að leyfa því að verða til og frumflutti það svo á útskriftartónleikunum mínum vorið 2017 við frábærar undirtektir.”
Marína hefur starfað sem tónlistarkona frá unga aldri. Hún hefur komið sterk inn á íslensku jazzsenuna síðustu misseri en hún býr nú í Stokkhólmi þar sem hún stundar mastersnám í jazzsöng með áherslu á lagasmíðar.
Textinn inniheldur fallegan boðskap sem er Marínu kær. „Lagið fjallar um minn betri helming og hvernig litlir hlutir og augnablik sem maður tekur sjaldnast eftir geta haft falleg og góð áhrif á líðan manns. Ég, eins og svo margir, á það til að festast á yfirsnúningi og missa tærnar aðeins af jörðinni. En lítil athöfn, eins og leggja hendi sína í hendi einhvers annars, getur verið svo jarðtengjandi augnablik. Eins og lífið einfaldist bara, þó ekki sé nema í smástund. ”
Ásamt Marínu Ósk spila þeir Mikael Máni Ásmundsson á rafgítar, Ásgeir J. Ásgeirsson á kassagítar, Lito Mabjaia á rafbassa og Þorvaldur Halldórsson á trommur. Þær María Magnúsdóttir og Rakel Pálsdóttir sungu svo inn raddir.
Þessi fysta smáskífa Marínu Óskar gefur tóninn fyrir væntanlega breiðskífu sem kemur út í byrjun hausts. Platan hlaut styrk frá Hljóðritasjóði Rannís og var tekin upp í Sundlauginn í Mosfellsbæ. „Platan verður í lágstemmdum og poppuðum söngvaskáldastíl og akústíski gítarhljómurinn nokkuð ráðandi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég gef út eigið efni og það verður ljúft að koma þessu loksins út í alheiminn”, segir Marína Ósk að lokum.
Lagið er komið á Spotify og allar helstu streymisveitur og má hlýða á það hér að neðan.
Marína Ósk á Facebook
Umræðan