Tónlistarmaðurinn Birgir er heldur betur á blússandi siglingu um þessar mundir en hann sló í gegn með laginu Can you feel it, sem kom út árið 2017 og hefur fengið yfir 11 milljón spilanir á Spotify.
Fyrir skömmu sendi Birgir frá sér nýtt lag en það ber heitið Alive og verður að finna á væntanlegri breiðskífu hans sem lítur dagsins ljós með sumrinu. Birgir er mikill tónlistargrúskari enda á hann ekki langt að sækja tónlistaráhugann þar sem hann er sonur Stefáns Hilmarssonar, eins ástsælasta söngvara landsins. Albumm.is fannst því tilvalið að heyra í kappanum og fá að heyra á hvaða tíu lög hann væri að hlusta um þessar mundir.
Birgir á Instagram
Umræðan