Fyrir skömmu sendi rapparinn 24/7 frá sér plötuna FM 24/7 en nú var að koma út myndband við lagið Brauðið.
Kappinn er ekki einsamall í laginu en Joey Christ, Birnir og Danill ljá laginu einnig rödd sína. Lagið er virkilega þétt með nettum “gangsta” fíling sem á klárlega eftir að renna ljúflega inn í eyru hlustandans.
Myndbandið er virkilega skemmtilegt og þá sérstaklega þegar Daniil kemur inn ríðandi á hesti, stórkostlegt! Myndbandið er leikstýrt af þeim Bryngeiri Vattnes og Baldvin Vernharðs og Bryngeir Vattnes sá um eftirvinnslu. Gabríel Bachmann sá um “effecta”
Brauðið er pródúsað af Tommy en Addi 800 sá um mix og masteringu.
Hér fyrir neðan má hlusta á plötuna FM 24/7
Umræðan