Lil Hauki er 17 ára og kemur frá Ísafirði en fyrir skömmu sendi hann frá sér plötuna „Talaðu Við Mig.”
„Ég byrjaði að gera tónlist þegar ég var 15 ára og þá gerði ég á ensku. þetta var fyrsta skipti sem ég skrifa heila plötu á íslenku.” Lil Hauki segist vilja fara sínar eigin leiðir í rappinu og það þurfi ekki alltaf að elta hina eða það sem er vinsælt hverju sinni.
Aðspurður hvaðan hann sækir sinn innblástur svarar hann: Ég er undir miklum áhrifum frá Aron Can. Mér finnst “soundið” hans vera Ógeðslega gott.” Einnig er kappinn undir sterlum áhrifum frá bandaríska rapparanum Lil peep. „Hann er ástæðan fyrir því að ég byrjaði að semja svokallað “Emo Rap” segir Lil Hauki að lokum.
Umræðan