Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.
Að þessu sinni er það tónlistarmaðurinn Klaki en hann var með heljarinnar tónleika á íslensku streymisveitunni Uppkast, Akureyringurinn Ragga Rix sá, kom og sigraði rappkeppnina Rímnaflæði og að lpkum er það hljómsveitin The Post Performance Blues Band en dömurnar voru að senda frá sér myndband við harm blítt jólalag sveitarinnar Bleik jól.
Lestu frétt um Klaka HÉR
Lestu frétt um Röggu Rix HÉR
Lestu frétt um Bleik Jól HÉR
Hægt er að hlusta á Tónlistarmínútur í heild sinni HÉR
Umræðan