Reykjavík Record Shop gefur út EP plötuna Study Fun Nr. 1 með hljómsveitinni Mukka.
Um er að ræða 10 tommu vínylplötu sem gefin verður út í 50 númeruðum eintökum. Platan er frumraun hljómsveitarinnar. Mukka er nýtt og spennandi verkefni sem saman stendur af fjöllistarmönnunum Guðmundi Óskari og Kristjóni Frey.
Tónlist sveitarinnar er virkilega þétt og má lýsa sem afslöppuðu trip hoppi með dass af indie! Bönd eins og The Beta Band, Boards of Canada og Stereolab koma fyrst upp í hugann þegar hlýtt er á þessa frábæru plötu. Ekki hika við að skella á play, þetta á eftir að fara ansi vel í eyrun.
Umræðan