Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hefur það að markmiði að ýta undir fjölbreytt tónlistarlíf í tónlistarhúsinu.
Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu, Músíktilraunir, Upptakturinn og útgáfutónleikar Mammút eru meðal þeirra tónleika, tónlistarhátíða og fræðsluverkefna sem Ýlir – tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk mun styðja við á næstu mánuðum. Alls hljóta 13 tónleikar og tónlistarverkefni nú styrk frá sjóðnum upp á samtals fimm milljónir króna.
Ýlir – tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hefur það að markmiði að styðja efnilegt tónlistarfólk og veita því tækifæri til að koma fram í húsinu. Sjóðurinn einsetur sér að styðja við verkefni af ólíkum toga og ýta þannig undir fjölbreytt tónlistarlíf í Hörpu.
Á síðustu fjórum árum hefur sjóðurinn stutt við rúmlega þrjátíu tónleika, tónlistarhátíðir og fræðsluverkefni í Hörpu. Má þar nefna Nótuna uppskeruhátíð tónlistarskóla í landinu, tónleikaseríurnar Eflum ungar raddir og Tónsnillingar morgundagsins, Músíktilraunir sem í rúmlega þrjá áratugi hefur verið vettvangur fyrir ungar og efnilegr hljómsveitir til að koma sér á framfæri, þungarokkshátíðina Wacken Metal Battle á Íslandi, lokatónleika Stelpur rokka – og tónleika listamanna á borð við Agent Fresco, Ylja, Elfu Rún Kristjánsdóttur og Emmsjé Gauta.
Alls bárust sjóðnum hátt í 30 umsóknir í því umsóknarferli sem nýlega lauk. Meðal þeirra þátta sem stjórn sjóðsins lítur til við afgreiðslu umsókna er hvernig verkefnið nýti möguleika Hörpu sem tónlistarhúss, möguleikar þess til að höfða til nýrra áheyrendahópa og hvernig það nýtist ungu og efnilegu tónlistarfólki.
Verkefnin er nú hljóta stuðning | Fjárhæð | |
Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu | 1.000.000 | |
Mammút – útgáfutónleikar | 500.000 | |
Óskalög þjóðar í Hörpu – Samt. ísl. lúðrasveita | 500.000 | |
Blikktromman – tónleikasería | 500.000 | |
Upptakturinn 2016 – Tónköpunarverðlaun barna og ungmenna | 400.000 | |
Óperuakademía Unga fólksins | 400.000 | |
ErraTAK | 300.000 | |
Músíktilraunir 2017 | 300.000 | |
iTrio – Harmonikkutríó, tónleikar | 300.000 | |
Kvöldvaka – Flutningur á íslenskum þjóðlögum | 250.000 | |
Vaginaboys – útgáfuptónleikar | 200.000 | |
Ný kynslóð – óháðir kórar – tónleikar | 200.000 | |
Elín Dröfn Jónsdóttir – Vídeótónleikar m. heyrnartólum | 150.000 |
Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk, sem síðar fékk nafnið Ýlir – tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk, var stofnaður í lok árs 2010 þegar Menningarsjóði SPRON var slitið með úthlutun til ýmissa mennta-, menningar- og góðgerðarmála. Alls var 80 milljónum króna varið til stofnunar þessa tónlistarsjóðs sem ætlaður er til þess að veita ungu og efnilegu tónlistarfólki tækifæri á að koma fram í Hörpunni.
Umræðan