Ýlir – Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hefur það að markmiði að styðja ungt tónlistarfólk og veita því tækifæri til að koma fram í Hörpu. Sjóðurinn styður við tónleika og tónlistarverkefni af ólíkum toga og vill þannig ýta undir fjölbreytt tónlistarlíf í húsinu.
Sjóðurinn hefur nú hafið umsóknarferli sitt fyrir tónleika og verkefni sem fyrirhuguð eru ár árinu 2017. Meðal þeirra þátta sem stjórn sjóðsins lítur til við afgreiðslu umsókna er hvernig tónleikarnir og verkefnið nýti möguleika Hörpu sem tónlistarhúss, möguleikar þess til að höfða til nýrra áheyrendahópa og hvernig það nýtist ungu og efnilegu tónlistarfólki.
Á síðustu árum hefur sjóðurinn stutt við rúmlega fjörutíu tónleika, tónlistarhátíðir og fræðsluverkefni í Hörpu. Má þar nefna Nótuna uppskeruhátíð tónlistarskóla í landinu, tónleikaseríurnar Eflum ungar raddir og „Tónsnillingar morgundagsins, tónlistarhátíðina Wacken Metal Battle á Íslandi, Operuakademíu unga fólksins, Harpa International Music Academy, lokatónleika Stelpur rokka og Músíktilraunir sem í rúmlega þrjá áratugi hefur verið vettvangur fyrir ungar og efnilegar hljómsveitir til að koma sér á framfæri. Sjóðurinn hefur einnig stutt við tónleika listamanna á borð við Agent Fresco, Ylja, Elfu Rún Kristjánsdóttur og Emmsjé Gauta.
Umsóknarfrestur er til 16. janúar. Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu sjóðsins http://www.ylir.is
Umræðan