Skráning er hafin á námskeið hjá Hjólabrettaskóla Reykjavíkur sem hefst laugardaginn 7. og 8. Apríl 2018. Líkt og á fyrri námskeiðum er það Steinar Fjeldsted sem sér um kennsluna en hann hefur um þrjátíu ára reynslu af hjólabrettum, hefur tekið þátt í fjölda keppna bæði hér á landi og erlendis og verið viðloðinn brettanámskeiðum í um fimmtán ár.
„Ég hef verið á hjólabretti nánast allt mitt líf og það er enn þá það skemmtilegasta sem ég geri! Hjólabretti hefur hjálpað mér mjög mikið í lífinu t.d. ýtt undir sjálfstæði, opnað augu mín fyrir umhverfinu og og kennt mér að treysta á sjálfan mig.” – Steinar Fjeldsted.
Farið er yfir öll helstu grunnatriði hjólabrettaíþróttarinnar eins og t.d. ýta sér, hvernig á að standa, snúa við, líkamsstöður og Ollie (hoppa) svo fátt sé nefnt. Fyrir þau sem eru örlítið lengra komin verður farið í ögn flóknari hluti eins og t.d. Kickflip, Shovit og jafnvel 360 flip. Á námskeiðinu er hjálmaskilda en einnig eru allir hvattir til að koma með þær hlífar sem viðkomandi á. Nauðsynlegt er að eiga hjólabretti eða mæta á námskeiðið með eitt slíkt.
Námskeiðið fer fram í glænýju og glæsilegu húsnæði Jaðar Íþróttafélag að Dugguvogi 8 og byrjar námskeiðið kl 10:00 og stendur til kl 11:30 og eru í fjögur skipti. Námskeiðið kostar 10.000 kr og fer skráning fram á hjolabrettaskoli@gmail.com, nafn og kennitala barns þarf að fylgja skráningu, nafn og símanúmer forráðamanns og hvaða dag á að skrá barnið, (laugardaga eða sunnudaga).
Einnig bjóðum við upp á 25% afslátt á samansettum brettum í Versluninni Skuggi á Skólavörðustíg 22.
Frekari upplýsingar í síma: 612-9150 og á hjolabrettaskoli@gmail.com
Umræðan