Siggeir Magnús Hafsteinsson eða Sig Vicious eins og hann er iðulega kallaður er einn fremsti hönnuður landsins en hann er einnig lúnkinn ljósmyndari. Kappinn er ljósmyndari hjá kvikmyndafyrirtækinu True North en hann er oftast út um allar trissur og hvergi lognmola þar sem hann er annarsvegar.
Óhætt er að segja að Sig Vicious hefur komið víða við á viðburðarríkum ferli en hann hefur hannað ótal mörg plötuumslög (innlend og erlend), haldið stórar og flottar sýningar en einnig hefur verið fjallað ýtarlega um hann í erlendum fjölmiðlum.
„Vikan með Sig Vicious“ er nýr flokkur á Albumm.is en þar skyggnumst við inn í líf kappans í gegnum ljósmyndir! Á hverjum föstudegi byrtast ljósmyndir frá ævintýrum kappans frá líðandi viku.
Umræðan