Iceland Airwaves er á næsta leiti og eru eflaust margir komnir í stellingar fyrir einn skemmtilegasta tíma ársins. 101 Reykjavík fyllist af tónlistarfólki allstaðar að úr heiminum og er stemmingin vægast sagt frábær. Iceland Airwaves í samstarfi við Urban Nation eru um þessar mundir að skreyta nokkra veggi í miðbænum undir yfirskriftinni Wallpoetry 2015 en fjölmargir erlendir götulistamenn eru komnir til landsins. Listamennirnir fá einungis fjórtán daga til að klára verk sín óháð hvernig viðrar en ringt hefur alla vikuna en það hefur ekki haft nein áhrif á mannskapinn. Henný María Frímannsdóttir hjá Iceland Airwaves bauð nokkrum hljómsveitum að tengja sig við götulistamennina og átti hver sveit að semja lag um viðkomandi verk.
DEIH XLF – VÖK
EVOCA 1 – SAUN & STARR
ERNEST ZACHAREVIC – DIKTA
LI HILL – JOHN GRANT
ELLE – ÚLFUR ÚLFUR
CARATOES S – YLJA
TANKPETROL – GUSGUS
TELMOMIEL – MERCURY REV
UGLY BROTHERS – GÍSLI PÁLMI
D FACE
Árið 2017 opna fyrsta „urban-art“ safnið í heiminum. Safnið, sem verður til húsa í Berlín, verður á sex hæðum og þar verða vinnustofur tónlistar- og listamanna, sýningarrými auk íbúðir fyrir listamenn. Íslenskir listamenn fara til Berlínar árið 2017 og verður sami leikurinn endurtekinn þar.
Þetta er virkilega flott og spennandi verkefni og ættu allir að kíkja á listaverkin en þau eru á eftirtöldum stöðum:
Hólmaslóð 2
Grandagarði 14
Norðurstíg
Skúlagata 4
Hjá Gamla Bíó
Hverfisgata 42
Laugavegur 35
Laugavegur 66
Linkar:
https://www.youtube.com/channel/UCvNhKz5XmcWOB1wQ2_LKxzA
Tengdar Færslur:
https://albumm.is/dagskra-iceland-airwaves-komin-og-albumm-is-med-svid-a-hurra/
https://albumm.is/frabaer-stemning-airwaves-gaerkvoldi/
https://albumm.is/future-figment/
Umræðan